37. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, miðvikudaginn 14. febrúar 2024 kl. 15:00


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 15:05
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 15:05
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 15:05
Björn Leví Gunnarsson (BLG) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 15:05
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 15:05
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 15:20
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 15:05
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 15:05

Diljá Mist Einarsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:05
Fundargerðir 35. og 36. fundar voru samþykktar.

2) 675. mál - tímabundinn rekstrarstuðningur vegna náttúruhamfara i Grindavíkurbæ Kl. 15:05
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðrúnu Þorleifsdóttur og Gunnlaug Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Nefndin staðfesti umsagarbeiðnir með eins vikna umsagnafresti og ákvað að Ágúst Bjarni Garðarsson verði framsögumaður málsins.

Þá samþykkti nefndin að óska eftir minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, sbr. 51. gr. þingskapa.

3) 109. mál - vextir og verðtrygging o.fl. Kl. 15:34
Nefndin staðfesti umsagarbeiðnir með tveggja vikna umsagnafresti og ákvað að Ásthildur Lóa Þórsdóttir verði framsögumaður málsins.

4) Önnur mál Kl. 15:35
Nefndin ræddi starfið framundan. Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:42